top of page

Lagalegir fyrirvarar

Upplýsingar á vef NOVO Legal eru birtar samkvæmt bestu vitund NOVO Legal á hverjum tíma. Hvorki er þó hægt að ábyrgjast að þær séu allar réttar né er tekin ábyrgð á viðskiptum sem gerð eru á grundvelli þeirra. Þá kunna þær upplýsingar og skoðanir sem fram koma á vefnum að breytast án fyrirvara. NOVO Legal ábyrgist ekki heldur áreiðanleika þess sem birtist á vefnum frá þriðja aðila. 

NOVO Legal ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á vef NOVO Legal né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á honum. Þá ber NOVO Legal ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki sé unnt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma. 

NOVO Legal á höfundarrétt að öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef NOVO Legal nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki NOVO Legal þarf til að endurbirta upplýsingar sem fram koma á vef NOVO Legal, dreifa þeim eða afrita þær. Hvorki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita eða dreifa. Viðskiptavinum NOVO Legal er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.  

bottom of page